Já, þú last þetta rétt. Hjúkrunarfræðingur fór á Twitter og bað konur – náðarsamlegast – að gera það ekki, þar sem hún hafði þurft að eiga við TVÖ slík tilfelli í vikunni.
Í guðanna bænum, ekki taka ryksuguna í þeirri von að hægt sé að sjúga upp tíðablóðið til að enda blæðingar fyrr.
Það er ekki séns það virki og getur verið stórhættulegt.
Eftirfarandi tíst eru frá Twinny, hjúkrunarfræðingi:
Hluti legsins getur sogast inn, rifnað, blætt, aflagast eða þú getur fengið sýkingu þar sem bakteríur eiga auðveldara aðgengi.
Hægt er að tala við lækninn sinn varðandi tíðarof eða annað sem þú vilt vita varðandi blæðingar.