Myndir og myndbönd hafa farið á flug á netinu eftir að Beyonce gaf konu nokkurri „dauðastöruna“ en hún var að spjalla við eiginmann hennar, Jay-Z og sýndi henni enga athygli.
Bey og Jay voru á úrslitaleik NBA 2019 milli Golden State Warriors og Toronto Raptors, þegar kona settist við hlið Beyonce.
Konan er eiginkona eiganda Warriors, Nicole Lacob. Á meðan leiknum stóð settist hún við hlið Beyonce, sem hún heilsaði varla og fór í hrókasamræður við Jay-Z.
Bey var síður en svo ánægð, eins og gefur að skilja…og augnaráðið er sko ekki hægt að misskilja!
Jay-Z and Beyoncé are courtside for Game 3 😎 pic.twitter.com/6mmJuN8Odn
— ESPN (@espn) 6 June 2019