Mikil dulúð ríkir vegna fráfalls bandarísks pars sem var á ferðalagi á Fiji eyjum. Parið David og Michelle Paul var frá Texastíki, en þau fengu flensueinkenni fyrir tveimur vikum. Michelle lést þremur dögum seinna. David lést þegar verið var að undirbúa brottflutning hans til Ástralíu en koma átti honum á sjúkrahús þar.
Auglýsing
David var í flughernum og Michelle var íþróttakona. Ein kenningin er sú að þau hafi látist vegna óhugnanlegrar flensu sem geisar nú í suður-Kyrrahafinu.
Auglýsing