Nýju fatalínu Rihönnu hefur verið beðið með eftirvæntingu, enda er hún afar fjölbreytt, mikill lúxus og stærðirnar eru upp í 4/XXXL. Rihanna er í samstarfi við Louis Vuitton SE – LVMH Moët Hennessy – og er hún fyrsta svarta konan til að fá slíkan samning við LVMH.
Rihanna sagði við The New York Times að hún fengi innblástur hjá sjálfri sér: „Þetta eru joggingbuxur með perlum, karlmannlegur gallajakki með korsetti. Mér finnst við búa í heimi þar sem fólk tekur sér sjálfu með opnum örmum og elskar að vera það sjálft.
Verðið er kannski ekki á hvers manns færi og hefur orðið tilefni til gagnrýni, en hafa ber í huga að um lúxusvöru er að ræða. Sjá má allar vörurnar á FENTY.COM