Margir þekkja mormóna því þeir eru oftast ungir menn sem banka upp á hjá þér og vilja kynna sína túlkun á kristinni trú. Í þessum heimildarþætti „Meet The Mormons“ er fylgst með ungum breskum mormóna sem hefur helgað tveimur árum af lífi sínu í þennan félagsskap, en hann reynir að breiða út boðskapinn í Leeds, Bretlandi.
Auglýsing
Fyrir hinn tvítuga Josh Field frá Sussex er þetta tilfinningalegt ferðalag sem krefst margra fórna. Í tvö ár má hann eingöngu fylgja reglum kirkjunnar og hann má ekkert samneyti hafa við fjölskyldu eða vini – eingöngu trúbræður og -systur.
Auglýsing