Þegar þú tekur „sjálfu” – (e. selfie) hvenær er hún tilbúin á samfélagsmiðla? Hversu mikið þarf að „lagfæra” áður en myndinni er deilt með fylgjendum þínum?
Breski ljósmyndarinn John Rankin Waddell, aka Rankin, kannaði þetta í verkefninu sínu sem hann kallar Selfie Harm og voru niðurstöðurnar áhugaverðar.
Rankin myndaði fimmtán táninga án farða og bað þá svo um að „laga” myndirnar svo þær yrðu samfélagsmiðlahæfar að þeirra mati.
Af niðurstöðunum má sjá að það er áhyggjuefni hversu mikið ungu fólki finnst að hjá sér sjálfu. Það er ekki gott fyrir geðheilsuna eða sjálfsmyndina að líta allt öðruvísi út á samfélagsmiðlum en í raun og veru.
Selfitis er heiti á geðröskun og er hún talin með fíknisjúkdómum. Fólk fer í lýtaaðgerðir til að líta meira út eins og lagfærðu myndirnar.
Það þýðir stærri augu, minna nef, ljósari húðlitur og allt fyrir fleiri „læk” á samfélagsmiðlum.