Kim Kardashian og Kanye West eiga von á barni númer 4 í gegnum meðgöngumóður og héldu þau “babyshower” eða barnasturtu fyrir komandi barnið sitt á laugardaginn síðastliðinn.
Í veislunni var jóga úti í garðinum þeirra og mjög róleg stemmnig.
Í myndbandi sem tekið var í veislunni heyrðist í Kim segja
„Ég var að fara á taugum vegna þess að barnið kemur eftir bara tvær vikur og ég hugsaði hvað gæti verið betra en að halda litla veislu til að halda upp á það. Kardashian sagði líka „ég vil að stemmningin í barnasturtunni minni sé mjög róleg, ég vil hafa einhvers konar CBD- þema. Ég vil bara hafa nuddstöð, te gerð, kristala og við ætlum að drekka þar sem að ég er nú ekki ólétt sjálf.”