Hárgreiðslustofa og Disney kaffihús fyrir börnin: Myndir hafa nú birst af stærsta vöruhúsi Primark hingað til sem opnar í Birmingham, Bretlandi í vikunni. Þar verður boðið upp á gríðarlegt úrval fatnaðar eins og áður, en þú getur líka farið í klippingu og á stórskemmtilegt kaffihús með Disney-þema.
Nokkrir fengu að kíkja á vöruhúsið, s.s. fjölskylda og vinir starfsfólksins og hafa þau sent myndir af herlegheitunum.
Einn sagði: „Það er engu til sparað. Þetta er miklu betra en gamla búðin í Birmingham. Nýja kaffihúsið er meira að segja með gagnvirkum borðum fyrir börnin að leika sér.“
Í miðjunni má sjá risastór skilti þar sem stendur m.a. Amazing fashion, Amazing prices.“
Hægt er að prenta út á stuttermaboli í búðinni það sem fólk óskar.
32 mátunarklefar eru í búðinni og frítt WiFi. Ekkert mál er að skipta eða fá endurgreitt og eru sérstök afgreiðsluborð til þess.
Nýja búðin opnar á High Street þann 11. apríl klukkan 10. Gamla Primark búðin á New Street lokar þann 10 apríl.