Söngdívan Britney Spears hefur nú lagst inn á geðsjúkrahús í kjölfar veikinda föður hennar Jamie. Hún póstaði skilaboðum á Instagram rétt áður en hún fór inn.
Britney (37) hefur fylgst grannt með heilsu föður síns Jamie og hefur verið afar áhyggjufull. Veikindi Jamie eru alvarleg og honum er ekki að batna.
Fréttirnar bárust rétt eftir að Britney deildi skilaboðum á Insta sem sagði: „Vertu ástfangin/n af því að hugsa um sjálfa/n þig, hugann, líkamann og andann.“
TMZ greinir frá því að Jamie hafi undirgengist tvær stórar aðgerðir á innyflum og ristli. Hann er enn að þjást af heilsufarsvandamálum og hefur ekkert batnað.
Fréttin verður uppfærð