Leikaraparið Ryan Gosling og Eva Mendes passa afskaplega vel upp á dætur sínar og halda þeim utan við sviðsljósið eins og þau geta. Þau fóru þó út á dögunum því Eva fagnaði 45 ára afmæli og sást fjölskyldan í Disneyland að skemmta sér.
Eva var með unnustanum til margra ára, leikaranum Ryan Gosling og dætrum þeirra, Esmeralda Amada og Amada Lee Gosling. Móðir Evu var með í för ásamt öðrum fjölskyldumeðlimum, lífverði og tveimur VIP leiðsögumönnum.
Mendes reyndi að láta lítið fyrir sér fara og ekki voru margir sem báru kennsl á hana. Papparassarnir eru hinsvegar allsstaðar og náðu myndunum.
Fengu þau sér churro, maís og kvöldverð á Club 33.
Eva (45) og Ryan (38) hafa verið saman síðan 2011. Getgátur hafa verið um að Eva gangi með þriðja barnið en það hefur ekki fengið staðfest.