Undir höttum og neti á höfði fyrirsætnanna var einnig afskaplega töff augnfarði sem snillingurinn Peter Philips hannaði. Hann kallar þetta „teiknimyndalúkk“ sem byggt er á fantasíumyndinni Who Are You, Polly Magoo? frá fimmta áratugnum (Ef þú fílaðir þættina Russian Doll, gætirðu fílað þessa líka).
Notaður var matte black eyliner úr Diorshow línunni til að lita allt augnlokið ásamt risastórum máluðum augnhárum fyrir neðan augað. Þetta eru í rauninni ferningar ekki línur, sagði Peter.
TIl að ná þessu þarf að passa þegar linerinn er enn blautur að horfa upp og strax niður. Þá kemur far á augnlokið, en þú vilt það. Það sýnir þá hversu langt þú mátt lita inn í, svo að segja.