Eins og alheimurinn veit hefur fátt verið umræddara í vikunni en flutningur Lady Gaga og Bradley Cooper á „Shallow“ á Óskarsverðlaunaafhendingunni og hvort þau séu ástfangin í leyni. Nú hafa aðdáendur bent á að Irina Shayk, kærasta og barnsmóðir Bradleys, fylgir ekki Gaga á Instagram.
Margir hafa furðað sig á hvort Irina sé bara sátt við hversu mikla athygli Lady Gaga fær frá Bradley. Ekki virðist annað segja okkur að henni líki það bara vel og þeim komi vel saman.
Hafandi sagt það, eru sumir algerlega sannfærðir um að Irina hafi hætt að fylgja Gaga fyrir Óskarinn og bæði slúðurblöðin og Twitter hafa farið hamförum. Til dæmis:
Svo þegar reikningur Irinu er skoðaður má ekki sjá nafn Gaga á listanum:
Lady Gaga fylgir henni ekki heldur, en svo allrar sanngirni sé gætt, fylgir hún bara 38:
Kannski er ástæða (og sumir vilja ólmir meina svo) fyrir því að þær fylgja ekki hvor annarri. Kannski hafa þær aldrei fylgt hvor annarri! Hver veit?