Lady Gaga og Bradley Cooper fluttu Óskarsverðlaunalagið „Shallow“ á eftirminnilegan hátt en þeim tókst að „kveikja í“ sviðinu með frammistöðu sinni. Kærasta og barnsmóðir Bradley Coopers, fyrirsætan Irina Shayk, virtist þó ekki taka það neitt nærri sér að þau væru náin á sviðinu í Kodak Dolby Theatre.
Mel B varð Lady Gaga reið og sagði hana hafa brotið „stelpuregluna,“ en flestir tóku þó ekki mark á henni. „Mér leið illa fyrir hönd kærustunnar hans,“ sagði hún í viðtali við Good Morning Britain við Piers Morgan.
Irina studdi mann sinn og Lady Gaga alla leið og var sú fyrsta til að standa upp og fagna eftir að þau luku flutningi sínum.
Ladies, gentlemen, #Oscars winner @ladygaga has entered Dolby for first time since winning for “Shallow.” She hugs Irina Shayk, Sam Elliott and Bradley Cooper, and she tries to hand him her statue for their creative collaboration. pic.twitter.com/7O3OcSO2xc
— Chris Gardner (@chrissgardner) 25 February 2019
Margir höfðu þó á orði að þetta væri nú ekkert venjulegt „chemistry“ á milli leikaranna.
Ef fólk þarf frekari vitnanna við má sjá þær stöllur faðmast eftir að Gaga vann Óskarinn.