Margar konur hafa upplifað (of)verndun föðurs eða annarra fjölskyldumeðlima. En afa? Amie McHugh (21) er afar glæsileg kona og afa hennar William er ekki sama hvernig komið er fram við barnabarnið sitt.
Bjó hann því til reglur í því samhengi, en þau eru frá Airdrie, Lanarkskíri í Skotlandi. Sagði Amie að hún væri „gargandi“ yfir þessum reglum, en þær voru skrifaðar með HÁSTÖFUM.
Reglurnar voru afar krúttlegar og líka fyndnar…
Regla nr. 1: Hann verður að vera RC (rómversk-kaþólskur)
2. Hann verður að styðja Celtic (skoskt fótboltalið)
3. Hann verður að vera í vinnu
4. Mér verður að líka vel við hann
5. Honum verður að líka vel við mig
6. Hann verður að vera fjárhagslega sjálfstæður
7. Hann má aldrei líta á aðra konu meðan hann er í þessu sambandi
8. Hann verður að vera góður
9. Hann verður að eiga bíl
10. Þegar hann er í kringum mig verður hann að borga reikninginn
Svo hætti hann eftir reglu 10 og sagði…„ok, þetta er komið eins og er.“
Amie segir í viðtali að afi hennar hafi alltaf verið til staðar og sé mjög umhugað um hana. Þau hittast oft: „Ég var alin þannig upp að afi var alltaf til staðar. Ég labba í tvær mínútur og er komin til hans, þannig við hittumst nær daglega.“
Amie segir að „reglurnar“ hafi verið settar fram í gríni, þannig hún tekur þeim mátulega alvarlega.
Hennar eigin „reglur“ eru eftirfarandi:
„Ég er bara að leita að einhverjum sem er gaman að vera með og við getum hlegið saman, smáatriðin skipta ekki svo miklu máli.“
Það er samt frábært að sjá að afinn hefur hagsmuni barnabarnsins í hávegum, sjá reglu fimm!