Óskarsverðlaunaleikkonan Nicole Kidman er þekkt fyrir að halda börnunum sínum utan við sviðsljósið. Dæturnar Sunday Rose (10) og Faith Margaret (7) sáust þó með föður sínum Keith Urban á flugvellinum í Sidney þann 7. febrúar síðastliðinn.
Nicole var hvergi að sjá.
Sunday var í kjól með hlébarðamynstri og brúnum ökklaskóm, lík föður sínum en grönn og hávaxin eins og móðir hennar.
Litla systir hennar Faith var í blómakjól og svörtum kúrekastígvélum.
Fjölskyldan hefur notið ástralska sumarsins síðan í byrjun árs, en eru nú á leið til Bandaríkjanna.
Þau sáust á tennismótinu Australian Open með ritstjóra Vogue, Önnu Wintour. Þau virðast alltaf jafn ástfangin og sáust oft í Sidney, á ströndinni og meira segja að fá sér KFC!