Fyrrum Friends stjörnurnar Courteney Cox (Monica) og Lisa Kudrow (Phoebe) hafa nú í deiglunni nýja þáttaröð en Jennifer Aniston verður ekki boðið að vera með.
„Courteney og Lisa eru í miðjum viðræðum um að búa til þætti saman. Þeim kom alltaf vel saman og vilja vinna saman á n´y. Jen er alltaf upptekin í milljón verkefnum svo Courteney datt ekki í hug að einu sinni spyrja hana,“ segir vinur stelpnanna í viðtali við Radar.
„Jen á eftir að sárna þetta mjög. Þáttaröð Jennifer og Reese Witherspoon á Apple hafa ekki gengið nógu vel. Jen gæti séð þetta sem samkeppni.“
Courteney (54) og Lisa (55) hittust nýlega á Palm veitingastaðnum í Beverly Hills og sögðu sjónarvottar að þær hefðu verið í djúpum og innilegum samræðum, væntanlega um nýja þætti.