Kim Kardashian og Kanye West eiga von á fjórða barninu með hjálp staðgöngumóður í maí á þessu ári. Þrátt fyrir hjónabandserfiðleika og margar spár um að þau séu að skilja hafa þau samt tekið ákvörðun um að eignast fjórða barnið.
Þau áttu einn karlkyns fósturvísir eftir og hafa ákveðið að nota hann. Á barninu er von snemma í maí. Vinir Kim segja hana alltaf hafa viljað eiga fjögur börn en fyrir á hún Chicago, 11 mánaða, North fimm ára og Saint þriggja ára.
Eins og lesendur Sykurs vita hafa hjónabandsvandræði Kim og Kanye verið mikil að undanförnu og hefur Kim eiginlega gefist upp á látunum í kringum hann. Vonandi verður barnið til að bjarga þeim!