Fyrirsætan og þáttastjórnandinn Heidi Klum hefur nú trúlofast ástinni sinni, Tom Kaulitz. Mikill aldursmunur er á parinu en Tom er 29 ára og hún 45. Tilkynnti Heidi þetta á Twitter á aðfangadag, en þau Tom hafa einungis verið að hittast í átta mánuði.
„ÉG SAGÐI JÁ!“sagði Heidi og birti mynd af þeim skötuhjúum að hjúfra sig upp að hvort öðru. Sýndi hún risastóran trúlofunarhring.
I SAID YES ❤️ pic.twitter.com/3U7XX6o7q3
— Heidi Klum (@heidiklum) 24 December 2018
Þau fóru fyrst að hittast í mars á þessu ári, en Heidi á mörg misheppnuð sambönd að baki.
Ástarfuglarnir hafa verið að hittast í risastóru húsnæði sem Tom leigir í Hollywood Hills: „Þau hafa verið að laumast þangað í þetta hús sem Tom og bróðir hans leigja. Það er mjög hentugt, þar sem það er í 20 mínútna keyrslu frá höll Heidi í Bel-Air.“
Heidi telur að hún sé við svo góða heilsu því hún stundar svo mikið kynlíf – og vill hún helst stunda það allt að fimm sinnum á dag.
„Heidi segir Tom vera mann í verkið og þau elska að vera saman í húsinu hans.“
Þetta er þriðja hjónaband Heidi sem var gift Ric Pipino á árunum 1997-2002 og söngvaranum Seal í níu ár en þau skildu árið 2014. Tom var giftur Ria Sommerfeld og skildu þau fyrr á þessu ári.
Its beginning to look a lot like Christmas 🎅🤶🎄🎁❤️ pic.twitter.com/3J0nBdsMzE
— Heidi Klum (@heidiklum) 23 December 2018