Fyrir fjórum mánuðum síðan var söngkonunni Demi Lovato (26) vart hugað líf, en hún tók of stóran skammt á heimili sínu. Tvítaði hún um málið í fyrsta sinn opinberlega og sagði „Einhvern daginn mun ég segja heiminum frá því nákvæmlega hvað gerðist og af hverju það gerðist og hvernig líf mitt er í dag.“
Demi fannst meðvitundarlaus á heimili sínu í Hollywood Hills þann 24 júlí. Í júní hafði hún komið öllum að óvörum með því að vera fallin og gaf út lagið Sober.
Hún fór svo á spítala í nokkrar vikur og í 90 daga meðferð en hún lauk henni í nóvember.
Síðan þá hefur hún haldið áfram með líf sitt og er meira að segja komin með nýjan kærasta, Henri Levy.