Söngkonan Ariana Grande var ein sú fyrsta til að bregðast við þeirri staðreynd að Pete Davidson, hennar fyrrverandi, sem hún hætti með í október sagðist vera í sjálfsvígshugleiðingum: „Ég er niðri og ég fer ekkert ef þú þarft einhvern eða eitthvað,“ tvítaði hún til stjörnunnar sem hafði farið í vinnu í stúdíói Saturday Night Live í New York þennan dag. „Ég veit þú hefur alla sem þú þarft og það er ekki ég, en ég er hérna líka.“
Pete (25) hafði póstað á Instagram að hann „vildi ekki vera á þessari jörð lengur.“ „Ég er að gera mitt besta til að vera hérna fyrir þig en ég veit í rauninni ekki hversu lengi ég endist til viðbótar. Allt sem ég reyndi var að hjálpa fólki. Mundu að ég sagði það.“
Pete eyddi svo skilaboðunum og Instagram reikningnum sínum og Ariana hefur nú eytt tvítunum til hennar fyrrverandi.