Leikarinn og íkonið Kirk Douglas er orðinn 102 ára. Hann hefur verið kvæntur Anne Buydens í 64 ár og er hún 99 ára. Þau fögnuðu afmælinu fyrir utan hús þeirra í Beverly Hills og tóku á móti gestum.
Auglýsing
Kirk var mjög hress og spjallaði. Á hurðinni var blómaskreyting sem sagði 102. Kirk notast við hjólastólk eftir að hann fékk slag og þar sat hann og hélt í hönd ástarinnar sinnar.
Auglýsing
Tengdadóttir hans, Catherine Zeta Jones, heiðraði Kirk og kallaði hann „afar fallegan mann.“ Deildi hún myndbandi af Kirk og sagði: ‘Happy 102nd Birthday to the most beautiful man. We love you Kirk.’

