Ástkær móðir Opruh Winfrey er látin, 83 ára að aldri. Vernita Lee lést á þakkargjörðardaginn á heimili sínu í Milwaukee, Wisconsin. Dánarorsök hefur ekki enn verið gefin upp.
Vernita á Opruh (64) með Vernon Winfrey og dótturina Patricia Amanda Faye Lee. Einnig átti hún fjögur barnabörn:Alisha Hayes, Chrishaunda Lee Perez, Aquarius Lofton og Andre Brown. Hún átti fjögur barnabarnabörn: Jaxon Praise Perez, Chai Theresa Perez, Donovan Hayes og Trinity Hayes.
Sonur hennar Jeffrey Lee, lést árið 1989 og dóttirin Patricia Lee Lloyd, lést árið 2003.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á góðgerðasamtökin Feeding America.