Hann lítur alltaf út fyrir að vera yngri, en stórstjarnan Leonardo DiCaprio varð 44 ára um helgina og hélt af því tilefni afar veglega veislu. Jennifer Aniston mætti og var í glæsilegum svörtum kjól og virtist skemmta sér mjög vel.
Á föstudagskvöldið mætti Leo og fylgdarlið til einkaklúbbsins Spring Place í Beverly Hills.
Jennifer (49) sást tala mikið við vinkonu sína Jennifer Meyer.
Aðrar stjörnur á staðnum voru Tobey Maguire, Gwyneth Paltrow, Robert DeNiro, Al Pacino, Alex Rodriguez og Kate Beckinsale.
500 manns var boðið í partýið á meðan 50 útvaldir fengu boð í kvöldverð. Leo hefur verið að hitta barnabarn Al Pacino, Camila Morrone (21) í hálft ár. Fögnuðu þau afmælinu alla helgina!