Fyrir 25 árum síðan var ung kona í rauðum sundbol hlaupandi um á strönd í slow motion á hvers manns vörum. Pamela Anderson varð kyntákn á örskömmum tíma og var hún heimsfræg. Þrátt fyrir að hún hafi verið mikið augnakonfekt að flestra mati var þó ýmislegt sem fólk sá ekki – ótrúleg staðfesta hennar í dýravernd og réttlætiskennd hennar þegar kemur að ýmsum málum.
Í dag er Pamela áhrifamikil í pólitík. Rússneski forsetinn Vladimir Putin tekur við símtölu frá henni og á hún í óvenjulegu ástarsambandi við stofnanda WikiLeaks, Julian Assange.
Hér má sjá nýlegt viðtal við Pamelu fyrir 60 Minutes: Australia