Hvítt fólk er „ógeðslegt,“ segir söngkonan Sinead O’Connor hefur vakið mikla athygli að undanförnu eftir að hafa tekið upp íslamstrú. Hún hefur engan áhuga á að umgangast fólk af hennar eigin kynþætti lengur. Shuhada’ Davitt, eins og hún heitir núna, játar að hún sé „orðin kynþáttahatari, ég hélt aldrei að sálin á mér gæti fundið annað eins.“
Biðst hún afsökunar á þessu og skrifar: „Mér þykir þetta mjög leitt. Það sem ég er að fara að segja er svo þrungið kynþáttahatri […] Í alvöru, ég vil aldrei aftur eyða tíma með hvítu fólki aftur (ef þeir sem eru ekki múslimar eru kallaðir það). Ekki í eina mínútu, ekki af neinni ástæðu. Það er ógeðslegt.“
I'm terribly sorry. What I'm about to say is something so racist I never thought my soul could ever feel it. But truly I never wanna spend time with white people again (if that's what non-muslims are called). Not for one moment, for any reason. They are disgusting.
— Shuhada’ Davitt (@MagdaDavitt77) November 6, 2018
Eftir þetta tvít sagði fólk af mismunandi trúar- og litarháttum að hún væri á rangri leið og hún ætti ekki að mismuna fólki á þennan hátt.
Sinead svaraði og sagði: „Það er áhugavert að sjá hvort Twitter bannar þetta þegar þeir leyfa fólki eins og Trump og Milbank að spúa satanísku sorpi yfir jafnvel mitt heimaland. Fyrirgefið mér. Stundum þarf guð sauruga verkamenn ; ) #NotAsFuckinCrazyAsSheLooks ; ) #TrustMeIAMaSoldier.