Óteljandi uppskriftir flæða um netið um hvernig þú eigir að ná árangri í að létta þig. Sumar eru frábærar, aðrar ekki svo frábærar! Það er ein uppskrift þó sem við höfum tröllatrú á og er það engifervatnið góða.
Engifer er í raun ákaflega öflugur fitubani. Það hjálpar til við að losna við fitu sem sest á rass, maga, bak og „varadekkið.“ Burtséð frá grennandi eiginleikum vatnsins er það líka afskaplega hollt og má sjá hér hvaða eiginleika það hefur helst við reglulega neyslu:
Lækkar kólesteról og minnkar líkur á sjúkdómum tengdum of mikilli (slæmri) blóðfitu
Kemur reglu á of háan blóðþrýsting
Minnkar bólgur í líkamanum
Andoxar líkamann
Engifer inniheldur mikið af magnesíum og sinki sem þýðir að það hefur góð áhrif á blóðrásina
Góð áhrif á meltinguna: Ef þú hefur litla matarlyst ættirðu að tyggja smá engifer áður en þú borðar. Áhrifin eru ótrúleg!
Styrkir ónæmiskerfið: Asíubúar hafa notaði engiferrótina í margar aldir við kvefi og flensu. Þrátt fyrir að það sé kannski ekki vísindalega sannað er ekki vitlaust að fá sér ríflega af engiferi þegar flensutíð fer í hönd
Það sem þú þarft:
Fáeinar þunnar sneiðar af engiferrót
1,5L af vatni
Sítrónusafi (ef óskað er)
Aðferð:
Það eina sem gera þarf er að sjóða vatnið með engiferrótinni í. Láttu sjóða í 10-15 mínútur og láttu svo kólna í smástund, ef ætlunin er að fá sér strax. Sigtaðu mixtúruna, bættu við sítrónusafa/ safa úr ca. hálfri sítrónu út í og drekktu glas á morgnana og eitt fyrir kvöldmat. Árangurinn ætti ekki að láta á sér standa!