Það er fátt í þessum heimi sem Ellen DeGeneres finnst skemmtilegra en að hræða gesti sína! Hvað er þá betra en að senda einhvern frægan í draugahús fyrir hrekkjavökuna? Ellen gerði það einmitt og sendi fyrirsætuna Chrissy Teigen og framleiðandann sinn trygga Andy Lassner í ótrúlega hræðilegt draugahús.
Fóru þau í Purge Maze hjá Universal Studios Halloween of Horror fyrir okkur að njóta og fyrir „klikkaða og geðveika ánægju Ellenar“ eins og Andy orðar það.
„Mér myndi langa að segja að Andy hefði verið mjög hugrakkur, en það væri alger lygi,“ segir Ellen í kynningu fyrir myndskeiðið.
Gleðilega hrekkjavöku!