Aðdáendur hafa verið afar forvitnir um hvort sögusagnirnar séu réttar: Eru Justin og Hailey gengin í það heilaga eður ei? Slúðurmiðlar allt frá People til TMZ hafa haldið því fram en hvorki Hailey né Justin hafa staðfest það. Það var ekki fyrr en Nona Melkoni, aðdáandi, sem snæddi við hlið parsins á Joan’s On Third í Studio City á þriðjudag að skúbbið fékkst sem veröldin hafði verið að bíða eftir.
„Ég spurði þau hvort þau væru gift og þau svöruðu bæði á sama tíma: Já!“ sagði Nona við Us Weekly. „Þau voru bæði mjög glöð og almennileg. Hann sagði mér að hún væri engill.“
Þar hafið þið það: Mr. og Mrs. Justin Bieber. Að eilífu.
Video of Hailey and Justin during lunch at Joan’s On Third in Los Angeles, CA (October 16). Cr: tonyfly pic.twitter.com/zii3GNTDqG
— Hailey Baldwin News (@HailsUpdates) October 16, 2018