Rapparinn Kanye West, einn af uppáhalds stuðningsmönnum Donalds Trump, hitti forsetann í dag í skrautlegu viðtali í Hvíta húsinu. Einræða væri eiginlega nær lagi, því Kanye talaði mestallan tímann. Donald jánkaði og lofaði rapparann, en ólíklegt þykir að hann hafi skilið eitthvað hvað hann var að fara.
Auglýsing
Kanye lofaði aðgerðir Donalds í Norður-Kóreu og var með húfuna góðu, „Make America Great Again“ og sagðist líða eins og Superman með húfuna – „When I put this hat on, it made me feel like Superman – my favorite superhero. You made a Superman cape for me.“
Auglýsing