Leikkonan og lífstílsbloggarinn Gwyneth Paltrow og framleiðandinn Brad Falchuk eru nú hjón. Gwyn (46) og Brad (47) játuðust hvort öðru við litla athöfn í The Hamptons. Um 50 gestir voru í brúðkaupinu og voru þar stjörnur á borð við Steven Spielberg, Jerry Seinfeld, Cameron Diaz, og Robert Downey Jr.
Brad var geislandi af hamingju þar sem hann mætti við athöfnina á undan Gwyn. Keyrðu hann sjálfur á Jeep og var skælbrosandi. „Hann virtist mjög hamingjusamur“ sagði einn gestanna. „Fáeinum mínútum síðar keyrðu Jerry Seinfeld og kona hans upp að húsinu.“
Seinfeld og Paltrow eru nágrannar í Hamptons og hafa verið vinir lengi. Móðir hennar Blythe Danner og Robert Downey Jr sáust blanda geði við gestina.
Gwyneth var gift Chris Martin, söngvara Cold Play á árunum 2003-2014. Þau eiga börnin Apple (14) og Moses (12).
Chris kom ekki í brúðkaupið en kom fram á tónleikum Global Citizen Festival í New York, sem er aðeins í tveggja tíma ökufæri. Í dag er Chris að hitta Dakota Johnson.