Það vissi enginn af þessu: Gamanleikarinn Owen Wilson (49) mun nú verða í þriðja sinn, en barnsmóðir hans tilvonandi hefur nú tjáð sig um væntanlega fæðingu. Varunie Vongsvirates (34) og Owen eiga nú von á sínu fyrsta barni saman og er hún sett núna, þann 28. september næstkonandi.
„Hann er mjög spenntur,“ segir Varunie í viðtali við Radar. Segir hún einnig að þau hafi verið að hittast í fimm ár, en hann vilji helst af öllu að sambandið fari leynt. Barnið, sem er væntalegt, mun fá nafið Lyla og segir Varunie að hún kvíði fæðingunni ekki neitt: „Ég er tilbúin!“ sagði hún.
Einnig segir hún að Owen muni verða frábær pabbi þar sem hann á nú þegar tvö börn og sinni þeim vel.
Póstaði hún mynd af þeim á samfélagsmiðla í ágúst síðastliðnum, tveggja ára gamalli, frá frumsýningu Father Figures.
Wilson á nú þegar Robert Ford (7) með flugkonunni Jade Duell og soninn Finn (4) með ballerínunni Caroline Lindqvist.