Mac Miller er látinn, aðeins 26 ára að aldri. Grunur leikur á að um ofneyslu eiturlyfja hafi verið að ræða. Fannst hann í dag, 7. september á heimili sínu í San Fernando Valley í Kaliforníu, samkvæmt TMZ. Variety hefur staðfest þessar fregnir.
Mac Miller, sem fæddist Malcolm James McCormick, hefur átt erfitt ár í neyslu. Í maí á þessu ári keyrði hann á staur undir áhrifum og var ákærður fyrir. Þáverandi kærasta hans, súperstjarnan Ariana Grande, sá sig knúna til að ræða opinberleg um baráttu hans við að verða edrú. Þau voru saman í tvö ár.
Nokkrum klukkustundum fyrir andlátið póstaði Mac mörgum myndböndum á Instagram sem tekin voru í stúdíóinu hans. Hann gaf út plötuna Swimming þann 3. ágúst síðastliðinn og ætlaði hann að hefja tónleikaferðalag í október.
Ariana og Mac hættu saman fyrir nokkrum mánuðum en hún var snögg að trúlofast Pete Davidson í kjölfarið. Óskaði Mac þeim alls hins besta.