Tveggja barna móðir sem lítur helst út fyrir að vera uppblásin dúkka í kynlífstækjabúð segir að þó hún pósti kynæsandi myndum af sér á samfélagsmiðla hindri það hana ekki í að vera góð móðir. Cindy Moore hefur farið í þó nokkrar lýtaaðgerðir, s.s. brjóstastækkun og látið stækka á sér varirnar. Hún vill helst af öllu líta út eins og kynlífsdúkka, en hún var áður í ofþyngd. Nú hefur hún grennst og nýtur þess til hins ýtrasta. Segist hún þó taka myndir mest sér sjálfri til gamans frekar en öðrum.
Auglýsing