Emily Paul var aðeins 14 ára gömul þegar hún hvarf frá heimili sínu í Tallahassee, Flórídaríki, BNA árið 2013. Hún sendi fjölskyldu sinni póst á dögunum og sagðist vera á lífi og við góða heilsu en hún gæti ekki gefið upp hvar hún væri stödd. Frænka hennar. Melissa Parker, segir hér í viðtali að hún og fjölskyldan hafi aldrei „gefið upp vonina.“ „Hún er á lífi. Það er það besta í þessu öllu saman.“
Auglýsing