Kendall Jenner er að sjálfsögðu ótrúlega falleg, alveg glæsileg. Tímaritið LOVE var að birta myndbandið – nýtt verkefni þar sem hin 22 ára fyrirsæta syndir um Hampstead Ponds nakin.
Myndbandið er afar listrænt og mun eflaust fá mikið áhorf. Mest ber á Kendall, en hún er ekki feimin að koma fram, eins og flestir vita.
Nú þar sem systurnar eru ósáttar og rífast mikið á Twitter, er ágætt að hugsa um eitthvað annað og Kendall er allavega mjög róleg og afslöppuð. Rifrildið hefur þó neytt hana til að halda með einhverjum og það mun vera Kourtney: „Ég treysti á Kendall því við erum bestu vinkonur. Við erum á sömu bylgjulengd, við fílum sömu hluti og gerum sömu hluti. Við spjöllum, skemmtum okkur og það er ekkert drama. Í þessari þáttaröð er Kendall með mér. Ég skildi ekkert hvað þær voru að segja um mig!“