Þessi gáta er í anda Hvar er Valli? myndanna og lætur fólk klóra sér í hausnum! Reyndu að finna eineggja tvíburana sem eru faldir á þessari mynd. Ströndin er afar þéttsetin og mikið er af aukahlutum, s.s. ís, fótboltum, skóflum og fötum og þessháttar og þó myndin sé ekki stór hefur hún farið á flug á netinu því það er erfitt að finna þá!
(þú getur smellt á myndina til að sjá hana stærri)
ChannelMum.com á heiðurinn af þessari mynd en talskona þeirra, Siobhan Freegard, segir: „Allir foreldrar þekkja þessa tilfinningu – að horfa á hóp af börnum og leita að sínu barni!“
Með tvíbura hlýtur þetta að vera sérstaklega erfitt. Ein vísbending er þó gefin – þó tvíburarnir séu sannarlega eineggja líta þeir ekki nákvæmlega eins út. Þú skilur það þegar þú finnur þá…
Hér er svo lausnin, ef þú gefst upp!
↓
↓
↓
↓
↓
↓
↓