Neistaflug varð baksviðs í spjallþættinum The View á dögunum milli eins stjórnandans, leikkonunnar Whoppi Goldberg og dómarans Jeanine Pirro. Báðar hafa þær talað út um hlutina við fjölmiðla vestanhafs, en báðar eru sagðar hafa notað F-orðið og Jeanine rokið út, rifið af sér hljóðnemann og hent í starfsfólkið. Fór allt í háaloft þegar Jeanine ásakaði Whoppi um að hafa „Trump Derangement Syndrome,“ sem er nýtt orð fyrir þá Bandaríkjamenn sem tala opinskátt um andúð sína á forsetanum.
Auglýsing