Breski prinsinn Louis var skírður mánudaginn 9. júlí. Vaknaði hann ekki við hina merku athöfn og svaf sem fastast í fangi móður sinnar Kate. Aðdáendur fylgdust með um allan heim, en Louis er þriðja barn þeirra Kate og William.
Skírnin er alltaf fastur liður í fæðingu barna innan konungsfjölskyldunnar. Var Louis skírður í Chapel Royal of St James’s Palace í London og var hann eins og ljós alla athöfnina sem stóð yfir í 40 mínútur. Var hann afskaplega vær eins og áður sagði og er þetta í annað skipti sem hann sést opinberlega.
Í fyrsta skiptið var 23. apríl 2018 þegar hann var nokkurra klukkustunda gamall. Heilsaði Kate með Louis öllum þeim sem höfðu áhuga á Lindo Wing í St Mary’s spítalanum í Paddington.
Nú er Louis 11 vikna gamall og var skírður með guðforeldrum og nánustu ættingjum. Hann er nýjasti meðlimur konungsfjölskyldunnar ásamt Meghan Markle en eins og kunnugt er gekk hún að eiga Harry Bretaprins í maí á þessu ári. Louis er áttunda barnabarnabarn Elísabetar drottningar og sá fimmti til að erfa konungsdæmið á eftir Charles Bretaprins, William Bretaprins, George Bretaprins og Charlotte Bretaprinsessu.