Fyrirsætan Hailey Balwin hefur trúlofast söngvaranum og hjartaknúsaranum Justin Bieber, staðfestir vinur fyrirsætunnar í viðtali við CNN. Parið, sem hafði verið í sambandi árið 2016 áður en þau hættu saman hafa sameinast á ný og virðist ástin blómstra.
Justin og Hailey voru á Bahamas eyjum á dögunum og er sagt að þá hafi Justin ákveðið að biðja hennar.
Pabbi Justins, Jeremy Bieber, hafði eitthvað að segja um málið en hann sagði á Twitter:
„@justinbieber Proud is an understatement! Excited for the next chapter!,“ í pósti sínum með mynd af söngvaranum ungum á strönd.
Á laugardag sagði mamma Justins, Pattie Mallette, á Twitter: „Love Love Love Love Love Love Love“ með engum öðrum útskýringum.
Faðir Hailey, Stephen Baldwin sagði að hann og mamma Hailiear, Kennya: „Always pray 4 God’s will !!“
„He is moving in the hearts of JB & HB,“ the elder Baldwin said in the tweet, which also tagged Bieber’s parents to congratulate them. „Let’s all pray for His will to be done. Love you 2 so much!!! #Godstiming #bestisyettocome.“
Svo eyddi Stephen tvítinu.
Ástarmál Justins eru mikið mál fyrir aðdáendur hans sem fylgjast grannt með – sambandi hans við Selenu Gomez og öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur.
Nú fóru aðdáendur á flug, sérstaklega vegna óvæntrar trúlofunar Ariönu Grande og Pete Davidson á dögunum en þau höfðu verið að hittast í nokkrar vikur.
Bieber og Grande hafa sama umboðsmann: Scooter Braun.
Hailey var nýlega tengd söngvaranum Shawn Medes, en þau hittust á Met Gala í New York í maí á þessu ári. Hún lýsti því yfir við UK The Times að hún og Justin hefðu átt erfitt eftir sambandsslitin árið 2016: „Við töluðum ekki saman lengu og það var allt mjög skrýtið. En við áttuðum okkur á að við værum bara betri vinir. Mér þykir vænt um hann. Þetta er fullorðinslegt. Allt í góðu.“