Fréttamiðlar um alla Asíu hafa verið að fjalla um stórundarlegt mál konu sem hvarf fyrir einu og hálfu ári síðan af strönd. Risastór alda hreif hana á brott en hún fannst aftur fyrir nokkrum dögum, á sömu strönd og hún hvarf frá og í nákvæmlega sömu fötum.
Nining Sunarsih (52) var í fríi á Sukabumi, Vestur-Java, þegar stór alda hreif hana á brott á Citepus ströndinni og bar hana langt út á haf. Sjónarvottar sögðust hafa séð konuna og heyrt hana öskra en þeir voru of hræddir að fara á eftir henni.
Leitarflokkar voru sendir út en fundu ekki. Viku seinna fannst lík á sama stað. Fjölskylda Nining var beðin um að bera kennsl á líkið en þrátt fyrir að líkið væri illa farið voru ættingjarnir sannfærðir um að þetta væri ekki hún. Á líkið vantaði fæðingarblett á maga og neglurnar litu ekki eins út.
Eftir DNA próf tókst að sanna að þetta væri ekki Nining. Yfirvöld gáfust þó upp á leitinni því líkurnar á að hún væri enn á lífi eftir marga daga á sjó voru hverfandi. Leitinni var hætt og konan úrskurðuð látin.
Fjölskylda Nining sætti sig ekki við að hún væri í raun látin og trúði alltaf að hún væri enn á lífi. Það er auðvitað eðlilegt, fólk á erfitt þegar það fær enga lokun, svo að segja. Sagan er þó ekki búin.
Fyrir nokkrum dögum fór frændi Nining að dreyma hana. Í draumnum sagði hún honum að leita hennar á strönd í Palabuhanratu, sem er nálægt þeim stað sem hún hvarf frá fyrir einu og hálfu ári. Frændinn gaf lítið fyrir drauminn í fyrstu, en þar sem draumurinn leitaði á hann og hann dreymdi hann aftur og aftur sagði hann fjölskyldunni frá honum. Fóru þau því að leita að henni.
Fjölskyldan hóf leit á ströndinni þann 30. júní síðastliðinn. Ekki fundu þau hana á þessari strönd en leitin hélt áfram alla nóttina og aðfaranótt sunnudagsins um fjögur um nóttina fundu þau hana á sömu strönd og hún hvarf. Hún var meðvitundarlaus og öll útötuð í sandi.
Eins og þetta væri ekki nægilega furðulegt, var Nining í sömu fötum og þegar hún hvarf – í rauðum kjól með blómamynstri og í svörtum buxum.
Fjölskyldan tók hana heim fyrst og svo á spítalann. Hún var veikburða og er nú undir eftirliti lækna. Þeir segja að allar líkur séu á að hún nái sér að fullu.
Aðrar upplýsingar eru takmarkaðar að svo stöddu en fjölskyldu Nining er sama um það. Þau telja tákn frá guði að hún sé á lífi.
Heimildir: Tribun News, Kompas, Dudung Pret