Hildur Ösp bjó með ofbeldismanni í 18 ár og segir hún að „hlutirnir hafi verið gerðir eftir hans höfði, hans geðþótta.“ Drykkja hans varð stöðug síðustu árin og niðurlægði hann hana nánast daglega og svo gekk hann í skrokk á henni.
Þetta var þó ekki svona til að byrja með, en skapofsaköst ásamt líkamlegu ofbeldi fóru að koma til sögunnar síðar án þess að Hildur vissi af hverju. Hún reyndi allt til að „halda honum góðum“ og „gera hlutina rétt“ til að hann trylltist ekki.
Enn þann dag í dag finnur hún fyrir áverkunum af hans hendi. Í meðfylgjandi myndbandi getur þú séð sögu Hildar.
Til að leita hjálpar fagaðila bendum við á https://www.bjarkarhlid.is/ eða https://www.kvennaathvarf.is/