Grínleikarinn Vince Vaughn sem er helst þekktur fyrir leik sinn í myndum á borð við Wedding Crashers og Dodgeball, var handtekinn aðfaranótt sunnudagsins 10. júní, grunaður að aka undir áhrifum áfengis.
Var hann stöðvaður af lögreglu í Los Angeles, nánar tiltekið í Hermosa Beach, um eittleytið í nótt. Var um að ræða reglubundið eftirlit lögreglu. Vince var ekki á þeim buxunum að láta taka sig og var því handtekinn fyrir að veita mótþróa við handtöku og að hindra framgang réttvísinnar. Farþegi í bílnum, sem ekki var nafngreindur, var einnig handtekinn fyrir ölvun og truflun við handtöku.
Bæði Vince og farþeginn voru settir í Manhattan Beach fangelsið og eru nú báðir lausir.
Talsmenn leikarans hafa ekki gefið út neina yfirlýsingu vegna málsins.
Vince var handtekinn árið 2001 fyrir slagsmál á krá í norður Karólínuríki.