David Beckham og Victoria Beckham hafa nú svarað þeim fréttum sem um þau hafa birst að undanförnu þess efnis að þau séu að skilja. Að undanförnu hefur sá orðrómur gerst æ háværari að þau séu að halda í sitthvora áttina. Þau hafa verið gift í 19 ár í næsta mánuði.
Föstudaginn 8 júni fór Twitter hálfpartinn á hliðina vegna þessara „frétta.“ Sagt var að í vændum væri yfirlýsing hjónanna um að þau væru að hefja nýtt líf, án hvors annars.
Þau hafa þó þverneitað að eitthvað sé til í þessum sögum og segja það „djö…bull,“ „vandræðalegt“ og „hlægilegt.“
Í yfirlýsingu frá umboðsmanni hjónanna segir: „Það er ekkert að segja eins og er um skilnað. Þetta eru allt falskar fréttir. Þetta er fáránlegt og vandræðaleg tímaeyðsla. Það er mikið um sögusagnir og falskar fréttir á samfélagsmiðlum.“
Veðbankar í Bretlandi hafa haft mikið að gera, margir hafa veðjað á skilnað eftir Twitter-öngþveitið sem hefur átt sér stað undanfarna daga. Þeir hafa þó lokað á veðmál þessu tengdu.
Victoria og Beckham (aka. Posh og Becks) eiga börnin Harper (6), Cruz (13), Romeo (15) og Brooklyn (19).
Í morgun póstaði Victoria fallegum skilaboðum á samfélagsmiðlum til eiginmanns síns til 19 ára. Var hún með Harper í skólabúning og sagðist sakna David. „Morgunknús“ titlaði hún myndina.
„Fólk hefur spurt: „Erum við saman að nafninu til? Auðvitað ekki,“ sagði David í viðtali við Desert Island Discs í janúar 2017: „Við erum saman af því við elskum hvort annað. Við erum saman af því við eigum fjögur æðisleg börn.“