Brody Jenner, sonur Caitlyn Jenner, gekk í það heilaga á exótískri eyju í dag, laugardaginn 2. júní, en Caitlyn hunsaði boðið og fór að djamma með kærustunni Sophia Hutchins í Vín, Austurríki. Caitlyn (68) ákvað að mæta frekar á viðburð sem kallast Life Ball en það eru samtök sem vekja meðvitund og umræður um HIV/AIDS.
Fyrrum „The Hills“ stjarnan Brody hélt því upp á brúðkaupið en hálfsystur hans, þær Kendall og Kylie mætti ekki heldur. Nokkrum klukkustundum fyrir athöfnin sáust Caitlyn og Sophia skála í kokteilum á Le Meridien hótelinu í Vín, kvöldið fyrir Life Ball.
Sýnir þetta glögglega hversu mjög Caitlyn hefur fjarlægst börnin sín eftir kynleiðréttinguna. Brody (34) gekk að eiga kærustuna sína Kaitlynn Carter (29) í fallegu brúðkaupi á eyjunni Nihi Sumba, sem er í Indónesíu. Gestir voru bróðir hans Brandon og móðir hans Linda Thompson. Mun brúðkaupsfagnaðurinn standa yfir í fjóra daga þar sem þau keppa á hestum á ströndinni, djamma og skemmta sér. Um 50 manns mæta í brúðkaupið.
Talsmaður Cait sagði að hún myndi ekki mæta því „vinnan kallaði.“ Aðrir hafa sagt að Cait hlýði Sophiu í einu og öllu og hafi hún bannað Cait að mæta í brúðkaupið: „Cait hefði alveg getað mætt í brúðkaupið ef hún vildi. Hún gerði það ekki því Sophia ræður. Sophia er númer eitt í lífi Cait og þær eru óaðskiljanlegar. Brúðkaupið hefði eyðilagt plönin þeirra og Sophia nennti ekki að fara. Þar af leiðandi fór Caitlyn ekki,“ segir vinur Cait í viðtali við People.
Brody bað Kaitlynn á strönd Nihi Sumba árið 2016 og var það því kjörinn staður til að halda brúðkaupið. Furðulegt nokk bera þær báðar sama nafn, Caitlyn og Kaitlynn, bara mismunandi stafsetning!