Stephanie Adams, 47, og sonur hennar sjö ára fundust látin á gangstétt á annari hæð fyrir neðan The Gotham hótelið í New York í dag, 18. maí. Stephanie var fyrrum „Playmate“ hjá Playboy og hafði starfað sem fyrirsæta. Hafði Stephanie átt í forræðisdeilu við barnsföður sinn sem hafði beitt hana ofbeldi, samkvæmt ABC News.

Stephanie skráði sig inn á hótelið fimmtudagskvöldið um klukkan 18. Voru þau mæðgin sett í svítu á 25 hæð, samkvæmt NYPD lögreglustjóranum William Aubry.
Um klukkan 8:30 í morgun var lögregla kölluð til annarar hæðar hótelsins því heyrst höfðu læti. Þar fundust tvö lík, annað var Stephanie og hitt litli drengurinn hennar.

Rannsókn er ekki lokið, en hótelið hefur 67 svítur og er á 25 hæðum.