Uppfært: Jóhann er fundinn
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jóhanni Friðfinni Sigurðssyni, 53 ára, til heimilis að Mánatúni 2 í Reykjavík, en ekkert er vitað um ferðir hans frá því í gærmorgun. Talið er mögulegt að hann hafi þá verið á ferðinni í Áslandshverfinu í Hafnarfirði, eða á þeim slóðum. Jóhann Friðfinnur, sem er 185 sm á hæð, er þreklega vaxinn og með skollitað hár. Hann er klæddur í bláar gallabuxur, svarta, þunna úlpu og gráa Skechers íþróttaskó.
Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Jóhanns Friðfinns, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögreglu í síma 112.