Sonur David og Victoriu Beckham, Brooklyn (19), er hættur með leikkonunni Chloe Moretz. Virtist hann afar sáttur kyssandi kanadísku Playboy fyrirsætuna Lexi Wood í V-Hollywood, laugardaginn 7. apríl.
Sáust Brooklyn og Lexi kyssast í strætó þar sem þau fóru saman á tattoostofu Doctor Woo að fá sér tattoo. Virtist Brooklyn vera nokk sama þó fólk sæi hann kyssa fyrirsætuna en hann hafði verið í sambandi með Chloe af og til. Þau höfðu þó verið saman í febrúar þegar hún fagnaði 21 árs afmælinu sínu.
Parið tók sér pásu í september 2016. Brooklyn var í sambandi við Madison Beer árið 2017. Chloe leið ekki vel á þeim tíma og sagði: „Ég var að verða fullorðin, að hætta í sambandi og það var allt mjög opinbert. Mig langaði bara að hverfa.“
Liklegt er að henni líði eins núna – Brooklyn komin með aðra skömmu eftir að þau sameinuðust á ný.
Lexi Wood er kanadísk fyrirsæta eins og áður sagði og hefur verið í Playboy, japanska Vogue og Galore Magazine—og hún er ekki feimin að deila undirfatamyndum af sjálfri sér með mörgum Instagram fylgjendum.