Lögreglumenn voru heppnir að ná að bjarga 89 ára konu sem hafði ekki heyrst frá í nokkra daga. Hin 89 ára Violeta Pilgrim hafði verið heima, umkomulaus undir dýnu og enginn hafði vitjað hennar. Þegar lögregluþjónarnir Whismick Charles og Pablo Gonzalez mættu á staðinn í Miami, Flórídaríki var hún föst undir dýnunni sinni og hafði verið þar í sex daga, að bíða eftir endalokunum.
Auglýsing