Leikkonan dáða úr þáttunum vinsælu Desperate Housewives, Eva Longoria, hefur nú tekið sér frí frá leiklistinni og er á síðustu metrum meðgöngunnar. Náðust af henni með fallega bumbu í Miami, Flórídaríki, á dögunum. Er þetta hennar fyrsta barn og er hún að framleiða þættina Grand Hotel í Miami. Fjalla þættirnir um fjölskyldurekið hótel þar á Miami Beach.
Eva er 43 ára og er gift Joe Baston. Sagði hún nýlega í viðtali að hún væri svo upptekin að hún hefði ekki haft tíma til að standsetja barnaherbergi enn! Er hún að flytja, selja gamla húsið og í nýtt þar sem hún hyggst koma barninu fyrir. Bætti hún samt við að hún væri mjög hress og hamingjusöm.