Aðeins örfáum dögum eftir að fyrrum Beverly Hills leikkonan Tori Spelling fékk taugaáfall á heimili sínu og lögreglan var kölluð til, gerðist það aftur í gærkvöldi, þann 10. mars. Var Tori úti að borða með eiginmanninum Dylan McDermott og börnunum þeirra fimm.
Fóru þau á Black Bear Diner og ætluðu sennilega að eiga góða fjölskyldustund. Þess í stað brast rifrildi á – svo alvarlegt að kalla þurfti til lögreglu.
Bæði starfsfólk og aðrir gestir urðu óttaslegnir, sem og börnin þeirra að sjálfsögðu. Reyndi lögreglan að skakka leikinn en er það í þriðja skiptið í sömu vikunni sem það gerist. Virðist hjónabandið vera að springa í loft upp.
Fjölskyldunni var vísað út um bakdyr veitingastaðarins.